Góðir hlutir gerast hægt.

Það er eitthvað sem segir mér það að þetta sé í seinasta sinn sem eitthvað vandamál kemur upp með Landeyjahöfn, höfnin hefur sýnt og sannað að hún er vel heppnuð framkvæmd og þeir sem áttu hugmyndina að byggingu hennar eiga heiður skilið.

Fólk þarf að sýna þolinmæði, ef ekki hefði komið til eldgos í Eyjafjallajökli og Kötlugosið 1918 þá væri ekkert vandamál með dýpi í höfninni.

Mér finnst allt benda til þess að vandamál Landeyjahafnar verði brátt úr sögunni.


mbl.is Landeyjahöfn að lokast á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meistari Megas aldrei verið betri.

Það ætti að gleðja þjóðina að Megas er að senda frá sér nýtt efni.  Meistarinn er á hátindi ferils síns og því má búast við einhverju stórkostlegu frá honum á nýju plötunni.

Meistari Megas er eins og gott vín hann batnar bara með aldrinum og það eru virkilega góðar fréttir að hann sé ennþá að semja nýtt efni. 

Það er styrkur fyrir Íslensku þjóðina að eiga Megas


mbl.is Megas og Senuþjófarnir í hljóðveri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geggjað

Þetta eru sannarlega gleðifréttir fyrir okkur sem höfum verið aðdáendur drottningarinnar seinustu ár.  Þetta lag er geggjað gott, án þess að ég hafi heyrt það, en ég trúi gáfnafari Bandarísku þjóðarinnar.

Þeir sem héldu að Britney Spears væri búin að vera sem listamaður hljóta nú að átta sig á að þeir dæmdu drottninguna ranglega.

Britney Spears hefur alla burði til að ná jafn langt og Geirmundur Valtýsson, hún hefur útlitið, röddina og hæfileikana til að ná sama frama og Geirmundur.


mbl.is Britney skaust beint á toppinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slæmar fréttir

Hún er nú ekki í anda jólanna þessi frétt, þessi framkvæmd hefur heppnast vel og því kemur það mér verulega á óvart að höfnin sé að lokast.

Það er ljóst þegar vindur hættir að blása af suðri og suðaustan þá verða engin vandamál að halda höfninni opinni.  Útlitið er því ekki alsvart.


mbl.is Landeyjahöfn verður lokuð í mánuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólagjöfin í ár

Ég verð nú að segja að þetta sé tvímælalaust jólagjöfin í ár, þetta er sannkallaður Hvalreki fyrir okkur sem erum aðdáendur drottningarinnar, ég ætla að taka þátt í þessu uppboði og stefni á að vinna þetta uppboð  :  )
mbl.is Nærbuxur drottningarinnar boðnar upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er ég hissa : )

Enginn átti von á þessu  :  )
mbl.is Eiður Smári á meðal varamanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Besta lausnin væri starfsstjórn undir forsæti Árna Johnsen.

Jóhanna og Steingrímur eru fyrir löngu komin í þrot, ég hvet þau til að segja af sér sem fyrst og hleypa að fólki sem hefur getu og vilja til að leysa vandamálin.

Í mínum huga er besta lausnin að forseti Íslands skipi starfsstjórn og feli Árna Johnsen að leiða hana.

Árni Johnsen er drengur góður, duglegur og hreinn og beinn.  Auk þess er Árni besti gítarleikari sem Alþingi á.

 


mbl.is Funda stíft um aðgerðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegt

Ég tel að þetta séu þáttaskil og nú liggi leiðin aðeins upp á við, þessi glæsilega höfn mun nú fljótt sanna gildi sitt.
mbl.is Búið að ná rörinu upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott höfn

Þessi höfn mun sanna sig með tímanum.
mbl.is Enn óljóst með Landeyjahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gefum Hodgson tíma.

Ég vill gefa Hodgson allavega þetta tímabil til að sanna sig, ég veit að liðið mun ekki falla.
mbl.is Everton skildi Liverpool eftir á botninum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband