Áfengi á að vera í matvöruverslunum

faxe_033 Að sjálfsögðu á að bjóða uppá bjór og léttvín í matvöruverslunum, ég myndi vilja ganga skrefi lengra og selja þessar vörur á bensínstöðvum og líka sterku vínin.  Það myndi spara mikinn tíma að geta nálgast þessar vörur á bensínstöðvum, því hver kannast ekki við að fatta það allt í einu að áfengið sé búið og allt lokað.

Það er kominn tími til að Íslendingar fari að lifa eins og aðrar þjóðir sem telja sig siðmenntaðar, það er enginn lausn að takmarka opnunartíma á áfengisverslunum, ef fólk vill fá vöruna þá á það að geta nálgast hana hvenær sem er.

Jafnvel mætti velta því fyrir sér að verslanir myndu bjóða uppá heimsendingu á bjór og léttvíni, það yrði án efa mjög vinsæl þjónusta. 


mbl.is Áfengið er komið í matvöruverslanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

þú ert annaðhvort mikill grínari(ég vona það) eða nautheimskur..........

Einar Bragi Bragason., 31.10.2007 kl. 14:40

2 Smámynd: Elvar Atli Konráðsson

Það er stóra spurningin ég er trúlega vanhæfur til að kveða upp dóm um það

Elvar Atli Konráðsson, 31.10.2007 kl. 14:51

3 Smámynd: Huld S. Ringsted

Af hverju? Er áfengi nauðsynjavara? Er það ekki bara vímuefni?

Huld S. Ringsted, 31.10.2007 kl. 15:08

4 identicon

Ég er á móti áfengi í matvöruverslunum af þeirri einföldu ástæðu að það kemur til með að hækka verðið um allavega 10-20%. Eins og staðan er í dag að þá leggur ÁTVR 6% ofan á áfengið til að standa undir rekstri verslananna (restin af verðinu er áfengisgjald sem ríkið leggur á). Það er engin verslun sem á eftir að sætta sig við svo litla álagningu m.v. það að meðal álagning í matvörubúðum er sennilega hátt í 100%. Þar sem við búum við dýrasta áfengisverð í heimi er ég alveg tilbúinn að renna smáspöl eftir sopanum til að komast hjá enn frekari hækkunum. Annars kaupi ég minn bjór í Þýskalandi þessa dagana og þar fæ ég á tilboði 3 kassa = 12 kippur = 72 dósir af 33 cl. bjór á 11,99 evrur = ca. 1100 kr. ísl.

Sighvatur (IP-tala skráð) 31.10.2007 kl. 15:42

5 Smámynd: Elvar Atli Konráðsson

Það eru flestar þjóðir sem við berum okkur saman við með áfengi í matvörubúðum, ég skil ekki af hverju þetta er svona mikið vandamál hérna að fá að selja þetta í matvörubúðum.

Mér finnst líklegra að áfengi lækki í verði við að fara í matvörubúðir. 

Elvar Atli Konráðsson, 31.10.2007 kl. 15:52

6 identicon

Elvar

endilega útskyrúðu mál þitt aðeins betur, finnst þér líklegra að áfengi lækki í matvörubúðunnum ?, Helduru virkilega að Jói í Bónus sætti sig við 6 % álagningu á vínu... leyfi mér að efast stórlega um það.

Steini (IP-tala skráð) 31.10.2007 kl. 17:00

7 Smámynd: Elvar Atli Konráðsson

Ég held að áfengisgjöld hljóti að lækka fljótlega, þetta er að skemma mikið fyrir Íslendingum þetta háa gjald á áfengi, en eins og þú veist þá eru ferðamenn gáttaðir á því.  Allir eru sammála um að heilbrigð samkeppni sé af hinu góða, það er ekki eins og menn stundi samráð á Íslandi 

Elvar Atli Konráðsson, 31.10.2007 kl. 17:08

8 identicon

Ég hefði haldið að samkeppni stuðli að lækkuðu vöruverði!!

Það er ekki eins og áfengi sé ódýrt í vínbúðunum svo varla verður það mikið dýrara.

Svanhvít Tryggvadóttir (IP-tala skráð) 31.10.2007 kl. 17:14

9 Smámynd: Grímur Kjartansson

"það er ekki eins og menn stundi samráð á Íslandi  "
Mjög fyndið í ljósi fréttaflutnings um samráð Krónunar og Bónus í fréttunum í dag. Það er borðleggjandi að bjórinn verður dýrari.

Grímur Kjartansson, 31.10.2007 kl. 17:41

10 Smámynd: Elvar Atli Konráðsson

Akkurat, maður hefði nú haldið að þetta væri nógu dýrt, leiðin hlítur að liggja niður 

Elvar Atli Konráðsson, 31.10.2007 kl. 18:24

11 Smámynd: Renata Sigurbergsdóttir Blöndal

Já það er nokkuð ljós að verðið hækkar og jafnvel minnkar úrvalið. Það er heldur ekki alltaf nauðsynlegt að Íslendingar séu eins og aðrar þjóðir, þetta hefur ekki reynst öðrum þjóðum vel.

Ég set líka spurningamerki við það að það sé siðmenntað að fara út á bensínstöð að kaupa sér vodka.

Renata Sigurbergsdóttir Blöndal, 31.10.2007 kl. 19:53

12 Smámynd: Elvar Atli Konráðsson

Það má alveg deila um það, en allavega bjórinn má vera þar eins og er í USA, ég hef ekki séð að Bandaríkjamenn hafi farið illa útur því  

Elvar Atli Konráðsson, 31.10.2007 kl. 20:15

13 identicon

En álagningin hækkar alltaf hlutfallslega. Ef áfengisgjaldið á 1 l. af Vodka yrði lækkað um segjum 1000 kr. að þá mundum við aldrei sjá nema svona 400 kr lækkun, afgangurinn færi í vasa verslunareigandans. Einnig er ég nokkuð viss um að ríkið er ekki tilbúið til að lækka sína álagningu (áfengisgjaldið) til þess að verslunarmenn fái meira í sinn vasa. Áfengi tekur töluvert pláss í verslunum og það pláss eru menn ekki tilbúnir að láta eftir nema að græða vel á því. Þetta á því bara eftir að hækka ef þetta fer í búðirnar, sjáið til.

Sighvatur (IP-tala skráð) 31.10.2007 kl. 21:06

14 Smámynd: Hjalti Garðarsson

Ég get svarað Einari Braga.  Elvar Konn er nautheimskur.  Grín og spaug eru fjarri honum.  Þú gafst bara tvo valmöguleika, þannig að hann er skv. því, nautheimskur.

Hjalti Garðarsson, 10.11.2007 kl. 17:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband